Selfoss stakk af í seinni hálfleik

Selma Þóra átti stórleik í marki Selfoss. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Selfoss vann öruggan sigur þegar KA/Þór kom í heimsókn í Set-höllina í dag í úrvalsdeild kvenna í handbolta. Lokatölur urðu 26-22.

Jafnt var á flestum tölum framan af fyrri hálfleik en um miðbik hans skoraði Selfoss þrjú mörk í röð og breytti stöðunni í 9-6. Munurinn varð mestur fimm mörk í kjölfarið og staðan var 15-10 í hálfleik.

Selfoss gerði út um leikinn með frábærri byrjun í seinni hálfleik þar sem þær náðu tíu marka forskoti. KA/Þór nálgaðist á lokakaflanum en sigur Selfoss var aldrei í hættu.

Hulda Hrönn Bragadóttir var markahæst Selfyssinga með 7 mörk, Perla Ruth Albertsdóttir skoraði 6, Eva Lind Tyrfingsdóttir 5, Hulda Dís Þrastardóttir 3/3, Harpa Valey Gylfadóttir 2 og þær Sylvía Bjarnadóttir, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir og markvörðurinn Selma Þóra Jóhannsdóttir skoruðu allar 1 mark.

Selma Þóra átti stórleik í markinu, varði 16/1 skot og var með 42% markvörslu.

Selfoss er í 6. sæti deildarinnar með 7 stig en KA/Þór er í 8. sæti með 4 stig.

Fyrri greinÖruggur sigur Þórsara í Keflavík