Selfoss og Hamar með sigra – Þór tapaði toppslagnum

Tristan Máni Morthens. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Sunnlensku liðin áttu öll leik í 1. deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Hamar og Selfoss unnu góða sigra en mesta spennan var fyrir leiki kvöldsins var fyrir toppslag Þórs og ÍA í Þorlákshöfn.

Þórsarar voru á hælunum í upphafi leiks og eftir rúmar sex mínútur var staðan orðin 9-22, gestunum í vil. Þórsarar réttu sinn hlut á næstu mínútum og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 45-50. Þriðji leikhluti var í járnum en ÍA náði að halda Þór fyrir aftan sig og munurinn varð minnstur fjögur stig. Þórsarar jöfnuðu 78-78 í upphafi 4. leikhluta en komust ekki nær, Skagamenn tóku aftur forystuna og héldu henni til leiksloka. Lokatölur í Þorlákshöfn urðu 94-104. Joey Holifield var stigahæstur Þórsara með 27 stig en Jovan Sljivancanin var framlagshæstur með 26 stig og 15 fráköst.

Hamar tók á móti KV og Hvergerðingar léku á als oddi framan af leik. Staðan í hálfleik var 63-48 og í upphafi 4. leikhluta var staðan orðin 90-68. Vesturbæingar klóruðu í bakkann undir lokin en forskot Hamars var öruggt og lokatölur urðu 108-97. Jose Medona var stigahæstur Hvergerðinga með 28 stig en Joshua Hardiman var framlagshæstur með 25 stig og 19 fráköst. Birkir Máni Daðason skoraði 20 stig.

Selfoss lenti í kröppum dansi gegn Snæfelli í Stykkishólmi. Leikurinn var jafn og spennandi lengi vel en Selfossliðið var sterkara á endasprettinum og sigraði að lokum 92-103. Snæfell jafnaði 80-80 þegar sex mínútur voru eftir en þá tóku Selfyssingar á sprett og geymdu Hólmara í baksýnisspegilinum eftir það. Tristan Máni Morthens var stigahæstur Selfyssinga með 27 stig, Avery Sullivan skoraði 22 og Óðinn Freyr Árnason 18.

ÍA er á toppi deildarinnar með 8 stig, Þór Þ er í 3. sæti með 6 stig, Hamar í 5. sæti með 4 stig og Selfoss í 7. sæti með 4 stig.

Fyrri greinMarkaveisla í Set-höllinni