Selfoss enn í basli á botninum

Valdimar Ingvarsson hefur góðar gætur á Daníel Reynissyni í leiknum í kvöld. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Selfoss tók á móti fram í úrvalsdeild karla í handbolta í Set-höllinni Iðu í kvöld. Bæði lið hafa verið í basli síðustu vikur en Framarar hristu af sér slenið og unnu öruggan sigur, 29-35.

Framarar leiddu allan tímann, þeir skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins en Selfoss tókst að jafna 5-5. Þá tóku Framarar á rás og náðu mest sjö marka forskoti en staðan var 16-22 í hálfleik.

Selfoss byrjaði betur í seinni hálfleik og minnkaði muninn í tvö mörk en eftir það hægðist á sóknarleik þeirra og Fram jók forskotið aftur. Selfyssingar eygðu von þegar tíu mínútur voru eftir og þeir höfðu minnkað muninn í þrjú mörk, 28-31. En þeim tókst aðeins að skora eitt mark á síðustu tíu mínútum leiksins og Fram vann öruggan sigur.

Ragnar Hilmarsson var besti maður vallarins en hann skoraði 10 mörk fyrir Selfoss, Hannes Höskuldsson skoraði 5/1, Valdimar Örn Ingvarson 4, Tryggvi Sigurberg Traustason og Haukur Páll Hallgrímsson 3, Guðjón Baldur Ómarsson 2 og þeir Sveinn Ísak Hauksson og Anton Breki Hjaltason skoruðu 1 mark hvor.

Alexander Hrafnkelsson varði 8 skot í marki Selfoss og var með 24% markvörslu og Ísak Kristinn Jónsson varði 2 skot og var með 18% markvörslu.

Selfoss er í neðsta sæti deildarinnar með 1 stig en Fram lyfti sér upp í 7. sætið og er með 6 stig.

Fyrri greinLeitað að manni sem fór ekki í Ölfusá