Selfoss á toppinn eftir sigur í Vesturbænum

Kennedi Watkins var stigahæst Selfyssinga með 22 stig og 8 fráköst. Ljósmynd/Selfoss karfa

Selfoss tyllti sér á toppinn í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld með góðum sigri á KV á útivelli, 60-78.

Selfyssingar höfðu töglin og hagldirnar í fyrri hálfleik en staðan var 25-43 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var jafnari en Selfoss hélt KV í öruggri fjarlægð allan tímann.

Kennedi Watkins var stigahæst Selfyssinga með 22 stig og 8 fráköst.

Selfoss er með 6 stig í 1. sæti eftir fjórar umferðir en KV er í 8. sæti með 2. stig.

KV-Selfoss 60-78 (14-22, 11-21, 17-19, 18-16)
Tölfræði Selfoss: Kennedi Watkins 22/8 fráköst, Valdís Una Guðmannsdóttir 14/5 fráköst, Anna Katrín Víðisdóttir 9, Sigríður Svanhvít Magnúsdóttir 8/6 fráköst, Heiður Hallgrímsdóttir 6/9 fráköst, Sigríður Elva Jónsdóttir 5, Perla María Karlsdóttir 4, Mariana Duran 4/4 fráköst, Andrea Líf Gylfadóttir 3, Eva Rún Dagsdóttir 3/5 fráköst.

Fyrri greinSakna þess óskaplega að geta lagst í bað