Rúmlega 30 keppendur af HSK svæðinu á Landsmóti 50+

Ringólið HSK, liðið í bláu bolunum vann gullverðlaun, þau María Rósa Einarsdóttir, Ólafur Elí Magnússon, Erlendur Árnason og Sigríkur Jónasson. Liðið í gulu bolunum vann bronsverðlaun, þeir Jón M. Ívarsson, Ármann Fannar Magnússon, Guðmann Óskar Magnússon og Markús Ívarsson. Góð tenging er á milli liðanna en María úr meistaraliðinu og Guðmann Óskar úr bronsliðinu eru hjón og Ólafur Elí í sigurliðinu á tvo bræður í bronsliðinu. Ljósmynd/HSK

Um 350 keppendur tóku þátt í Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið var í Stykkishólmi um síðustu helgi, þar af voru rúmlega 30 keppendur af sambandssvæði HSK og fjórir frá USVS.

Keppendur HSK unnu nokkra landsmótsmeistaratitla á mótinu. Tvö ringólið frá HSK tóku þátt og unnu gull og brons. Í sigurliðinu voru Rangæingarnir Ólafur Elí Magnússon, María Rósa Einarsdóttir, Erlendur Árnason og Sigríkur Jónasson.

Í sundi vann Tómas Jónsson á Selfossi tvo titla í flokki 90 ára og eldri, en hann synti 100 m bringusund á 2:39,34 mín. og 50 m bringusund á 1:12,57 mín. Ótrúlegur árangur hjá Tómasi sem varð 90 ára í janúar á þessu ári.

Frændurnir úr Flóanum, þeir Jón M. Ívarsson og Sigmundur Stefánsson unnu báðir titla í frjálsum á mótinu. Jón varð landsmótsmeistari í lóðkasti og kringlukasti í flokki 70-74 ára og Sigmundur vann lóðkast í 75-79 ára flokki.

Keppendur úr aðildarfélögum HSK unnu tvo titla í golfi. María Ragna Lúðvíksdóttir úr Golfklúbbi Selfoss vann 50-64 ára flokk kvenna á Víkurvelli, sínum gamla heimavelli og Jóhannes Elíasson úr Golfklúbbi Ásatúns vann 50-64 ára flokk karla.

Fjórir keppendur frá USVS kepptu á mótinu og unnu þrír þeirra titla á mótinu. Ragnheiður Högnadóttir vann kringlukast og spjótkast í flokki 60-64 ára, auk þess að vinna til verðlauna í körfuknattleik. Sabína Victoria Reinholdsdóttir vann 100 m hlaup og götuhlaup í flokki 50 -54 ára og Hafdís Eggertsdóttir vann 100 m hlaup, spjótkast, í flokki 70-74 ára.

Þegar þetta er ritað á eftir er að birta úrslit úr nokkrum greinum og því gætu bæst við fleiri í þessa upptalningu. Úrslit greina má sjá á heimasíðu UMFÍ.

Keppendur frá Golfklúbbi Selfoss. (F.v.) María Ragna Lúðvíksdóttir sem sigraði í sínum flokki, Bergsveinn Halldórsson, Rúnar Jónsson og Hreinn Þorkelsson. Ljósmynd/UMFÍ
Sigmundur Stefánsson í spjótkasti. Ljósmynd/UMFÍ
Victoria Reinholdsdóttir og Hafdís Eggertsdóttir. Ljósmynd/USVS
Markús Ívarsson í lóðkasti. LjósmyndUMFÍ
Ragnheiður Högnadóttir og Sveinn Þorsteinsson. Ljósmynd/USVS
Tómas Jónsson, sundkappi. Ljósmynd/UMFÍ
Fyrri greinEkki hægt að útiloka kvikuhreyfingar
Næsta greinEngin vandræði hjá Árborgurum