Þór Þorlákshöfn vann öruggan sigur á b-liði Keflavíkur í 1. deild kvenna í körfubolta í dag. Lokatölur í Keflavík urðu 75-90.
Leikurinn var jafn í 1. leikhluta en í 2. leikhluta stungu Þórsarar af og staðan var 37-50 í hálfleik. Jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik en sigur Þórs var aldrei í hættu.
Jóhanna Ýr Ágústsdóttir var stigahæst Þórsara með 24 stig, Shawnteanna Tillman skoraði 22, Jara Björg Gilbertsdóttir skoraði 18 stig og tók 9 fráköst og Sigrún Elfa Ágústsdóttir var framlagshæst með 14 stig og 13 fráköst.
Þórsarar eru í toppsæti deildarinnar með 10 stig eftir 6 umferðir en Keflavík-b er í 4. sæti með 6 stig.
Keflavík b-Þór Þ. 75-90 (24-23, 13-27, 19-21, 19-19)
Tölfræði Þórs: Jóhanna Ýr Ágústsdóttir 24/6 fráköst, Shawnteanna Tillman 22/8 fráköst/6 stoðsendingar, Jara Björg Gilbertsdóttir 18/9 fráköst, Sigrún Elfa Ágústsdóttir 14/13 fráköst, Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir 8/5 fráköst, Dagrún Inga Jónsdóttir 3/8 fráköst, Guðrún Anna Jónsdóttir 1.

