Þór Þorlákshöfn vann stórsigur á Breiðabliki í 1. deild kvenna í körfubolta þegar liðin mættust í Smáranum í Kópavogi í dag. Lokatölur urðu 67-103.
Leikurinn var jafn í 1. leikhluta en eftir það tóku Þórsarar völdin og stungu af. Staðan í hálfleik var 41-54.
Munurinn jókst jafnt og þétt allan seinni hálfleikinn og að lokum skildu 36 stig liðin að.
Shawnteanna Tillman var með risaframlag fyrir Þór; 31 stig, 8 stoðsendingar, 8 fráköst og 8 stolna bolta.
Þór er í 2. sæti deildarinnar með 8 stig, eins og Selfoss sem er í toppsætinu. Breiðablik er í 8. sæti með 4 stig.
Breiðablik-Þór Þ. 67-103 (23-25, 18-29, 12-26, 14-23)
Tölfræði Þórs: Shawnteanna Tillman 31/8 fráköst/8 stoðsendingar/8 stolnir, Antoaneta Alexe 17/8 fráköst, Jara Björg Gilbertsdóttir 15, Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir 13/5 fráköst, Sigrún Elfa Ágústsdóttir 10/5 fráköst, Jóhanna Ýr Ágústsdóttir 10/5 fráköst/7 stolnir, Emilía Ýr Gunnsteinsdóttir 3, Dagrún Inga Jónsdóttir 2/7 fráköst, Elín Sara Magnúsdóttir 2.

