ML sigraði í Lífshlaupinu

Síðastliðinn föstudag voru afhent verðlaun fyrir góðan árangur í Lífshlaupi framhaldsskólanna, en Menntaskólinn að Laugarvatni vann þar góðan sigur í sínum flokki.

Halldór Páll Halldórsson skólameistari og tveir nemendur, þær Eyrún Lind Árnadóttir og Árný Magnúsdóttir veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd skólans.

Lífshlaup framhaldsskólanna er heilsu- og hvatningarverkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Í verkefninu eru nemendur og starfsmenn framhaldsskóla landsins hvattir til að auka sína daglega hreyfingu eins og kostur er. Alls voru tíu skólar sem tóku þátt með 1.774 þátttakendur.

Úrslit í Lífshlaupi framhaldsskólanna í hverjum flokki fyrir sig voru:

0 – 399 nemendur og starfsmenn

Sæti

Skóli

Þátttökudagar

1. sæti

Menntaskólinn að Laugarvatni

2,96

2. sæti

Framhaldsskólinn á Húsavík

2,74

3. sæti

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

0,1

*Alls voru 3 skólar skráðir til leiks í þessum flokki

400 – 999 nemendur og starfsmenn

Sæti

Skóli

Þátttökudagar

1. sæti

Kvennaskólinn í Reykjavík

0,25

2. sæti

Fjölbrautaskóli Vesturlands

0,04

*Alls voru 2 skólar skráðir til leiks í þessum flokki

1000 o.fl. nemendur og starfsmenn

Sæti

Skóli

Þátttökudagar

1. sæti

Borgarholtsskóli

1,75

1. sæti

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

1,75

2. sæti

Verkmenntaskólinn á Akureyri

0,17

3. sæti

Menntaskólinn í Kópavogi

0,13

*Alls voru 5 skólar skráðir til leiks í þessum flokki

Fyrri greinKirkjunnar menn töluðu gegn miðaldakirkju í Skálholti
Næsta greinÞrír gistu fangageymslur á Selfossi