Sóknarleikurinn var allsráðandi og fátt um varnir þegar Selfoss 2 og Víkingur 2 mættust í 1. deild karla í handbolta í Set-höllinni á Selfossi í gærkvöld.
Leikurinn var jafn framan af fyrri hálfleiknum en á síðustu tíu mínútunum náðu Selfyssingar að koma sér upp þriggja marka forskoti og staðan var 19-16 í hálfleik.
Selfoss hafði forystuna allan seinni hálfleikinn og náði mest fimm marka forskoti en Víkingur minnkaði bilið undir lokin og lokatölur urðu 40-38.
Aron Leo Guðmundsson var markahæstur Selfyssinga með 14 mörk, Ragnar Hilmarsson skoraði 11, Bjarni Valur Bjarnason, Guðjón Óli Ósvaldsson, Kári Einarsson og Þormar Sigurðsson 3 og þeir Skarphéðinn Steinn Sveinsson, Dagbjartur Máni Björnsson og markvörðurinn Ísak Kristinn Jónsson skoruðu allir 1 mark. Ísak Kristinn varði 11 skot í marki Selfoss og Garðar Freyr Bergsson 4.
Selfoss 2 er í 3. sæti deildarinnar með 12 stig en Víkingur 2 er í 9. sæti með 3 stig.

