
Héraðsmót HSK í glímu fór fram í Þingborg í Flóahreppi síðastliðinn miðvikudag. Lúkas Týr Sigurðsson frá Krossi í Landeyjum og keppandi Dímonar hampaði Skarphéðinsskildinum í fyrsta sinn.
Í karlaflokki var keppt um Skarphéðinsskjöldinn í 98. skipti. Lúkas Týr er sá 45. í röðinni til að vinna skjöldinn í 116 ára sögu keppninnar. Sigur hans er að mörgu leiti sögulegur, en hann er fyrsti keppandi Dímonar til að vinna Skarphéðinsskjöldinn og hann er næstyngstur þeirra sem unnið hafa skjöldinn, en hann var 17 ára og 212 daga gamall á keppnisdegi. Yngstur til að vinna skjöldinn var Tungnamaðurinn Greipur Sigurðsson, hann var 17 ára og 40 daga þegar hann vann 1955 og Stefán Geirsson, núverandi formaður Glímuráðs HSK, var 17 ára og 301 dags þegar hann sigraði fyrst 1999.
Þess má geta að 94 ár eru síðan keppandi úr Austur Landeyjum varð skjaldarhafi og 43 ár eru síðan Rangæingur náði skildinum, en það var Holtamaðurinn Elías Pálsson í Saurbæ.
Því miður féll keppni niður í kvennaflokki annað árið í röð, en til stóð á keppa um Bergþóruskjöldinn í 20. sinn.
Keppni dagsins hófst í flokkum drengja og stúlkna frá 11 ára og yngri til unglingaflokka. Þar voru Dímonarkeppendur fjölmennastir og unnu stigakeppni félaga bæði í drengja- og stúlknaflokkum örugglega. Keppendur komu auk þess frá Umf. Þjótanda, Umf. Laugdæa og Umf. Biskupstungna.
