
Laugdælir/Uppsveitir sem leika í 2. deildinni tóku á móti 1. deildarliði KV í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta á Laugarvatni í kvöld. Úr varð hörkuleikur sem Vesturbæingar unnu að lokum, 103-115.
Laugdælir/Uppsveitir náðu átta stiga forskoti í upphafi leiks en þegar þrjár og hálf mínúta voru eftir af 1. leikhluta jafnaði KV 16-16 og tók forystuna í kjölfarið. Gestirnir röðuðu niður þristum í upphafi 2. leikhluta og náðu mest 20 stiga forskoti en heimamenn klóruðu í bakkann undir lok fyrri hálfleiks og staðan var 49-62 í leikhléi.
KV hélt Laugdælum/Uppsveitum í öruggri fjarlægð allan seinni hálfleikinn og kæfðu öll áhlaup þeirra í fæðingu. Munurinn var um og yfir 15 stig allan seinni hálfleikinn en Laugdælir/Uppsveitir söxuðu lítillega á forskot gestanna undir lok leiks.
Clinton Wright yngri var stigahæstur í liði Laugdæla/Uppsveita með 41 stig og Arnór Daði Viðarsson var sömuleiðis atkvæðamikill með 25 stig.
Laugdælir/Uppsveitir-KV 103-115 (22-29, 27-33, 30-30, 24-23)
Tölfræði Laugdæla/Uppsveita: Clinton Wright yngri 41/5 fráköst/6 stoðsendingar, Arnór Daði Viðarsson 25/4 fráköst/5 stoðsendingar, Hringur Karlsson 10/8 fráköst, Ingvar Jökull Sölvason 9, Óskar Már Óskarsson 8/5 fráköst, Magnús Þór Daníelsson 6/4 fráköst, Hrói Bjarnason Freyjuson 2, Eiríkur Gylfi Janusson 2.
