Langþráð sundmót á Hvolsvelli

Efnilegir sundmenn við laugarbakkann á Hvolsvelli. Ljósmynd/HSK

Það var mikil stemning í sundlauginni á Hvolsvelli síðastliðinn miðvikudag þegar aldursflokkamót HSK í sundi var haldið þar.

Ekki hefur náðst að halda mörg mót síðastliðið ár vegna aðstæðna í samfélaginu og svo þetta var kærkomið tækifæri fyrir sundfólkið á Suðurlandi til að koma saman og ná loks að keppa í sundi. Það voru þrú félög sem sendu keppendur til leiks; Dímon, Hamar og Selfoss.

Selfoss sigraði stigakeppnina örugglega með 187 sig, Hamar varð í öðru sæti með 52 stig og Dímon í því þriðja með 26 stig. Stigahæsta sundið samkvæmt stigatöflu FINA synti Jakob Ingi Reynisson, Umf. Selfoss, en hann synti hann 100 m skriðsund á 59,42 sek. sem gefur 432 stig.

Öllum þeim sem komu að skipulagningu og störfum á þessu móti eru færðar kærar þakkir fyrir.

Fyrri greinSjúkraþyrla á Suðurlandi best staðsett á Hvolsvelli
Næsta greinRekstur garðyrkjunáms tryggður með nýju samkomulagi