Landsbankinn styður áfram við Golfklúbb Selfoss

(F.v.) Helga Guðmundsdóttir fjármálaráðgjafi, Hlynur Geir Hjartarson Framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss og Nína G. Pálsdóttir, útibússtjóri á Selfossi. Ljósmynd/GOS

Skrifað hefur verið undir samning um áframhaldandi samstarf Landsbankans á Selfossi og Golfklúbbs Selfoss og verður Landsbankinn því áfram einn af aðalsamstarfsaðilum Golfklúbbsins.

Með samstarfinu vill bankinn sýna í verki áhuga sinn og stuðning við forvarna-, æskulýðs- og íþróttamál.

Landsbankinn hefur um árabil verið einn af öflugustu styrktaraðilum Golfklúbbs Selfoss og tekið virkan þátt í mótahaldi sem og stutt vel við uppbyggingu á barna- og unglingastarfi í klúbbnum.

Fyrri greinNáttúrubarnið Katrín Jakobsdóttir
Næsta greinSara Rosida dúxaði í ML