Krefjandi aðstæður í Hengill Ultra

Ljósmynd/Magnús Stefán Sigurðsson

Hengill Ultra fór fram um helgina í Hveragerði við krefjandi aðstæður. Mótshaldarar þurftu að breyta hlaupaleið lengstu hlaupanna vegna veðurs en á föstudag og vel yfir miðjan laugardag glímdu skipuleggjendur og þátttakendur við mikinn vind sem virtist á tímabili koma úr öllum áttum.

Mótið gekk þó vonum framar og upp úr miðjum degi á laugardag brast á sumarveður í Hveragerði þar sem keppendur gerðu vel við sig í mat og drykk í blíðskaparveðri að keppni lokinni. Alls mætti 1.301 keppandi til leiks en í það heila voru 1.425 skráðir í mótið þetta árið sem er met skráning.

106 KM ÚRSLIT
Íslendingurinn Friðrik Benediktsson sigraði 106 km hlaupið í Hengil en hann kom í mark rétt fyrir 9:00 í gærmorgun á tímanum 14:36 klst. Ester María Ólafs vann kvennaflokkinn. Í öðru sæti karla var Senan Oesch frá Swiss en svo komu þeir Hrólfur Vilhjálmsson og Egill Trausti Ómarsson saman í mark og deila með sér 3. og 4. sætinu. Hlaupið hófst klukkan 18:00 á föstudagskvöld þegar 21 hlaupari hóf keppni en af þeim kláruðu 14 þátttakendur.

53 KM ÚRSLIT
Grétar Örn Guðmundsson sigraði Hengil Ultra 53 km á tímanum 4:28 klst. Í öðru sæti var hinn spænski Chema Martínez fyrrum Evrópumeistari í 10.000 metra hlaupi sem var sérstakur heiðursgestur mótsins og í þriðja sæti var Egill Gunnarson. Í kvenna flokki var það Sif Árnadóttir sem kom fyrst kvenna í mark á tímanum 5:16 klst. Í öðru sæti var Eyrún Ösp Eyþórsdóttir í þriðja sæti var Helga Fabian.

26 KM ÚRSLIT
Búi Steinn Kárason sigraði 26 km Hengil á tímanum 1:46 klst og á eftir honum kom daninn Andreas Dam og í þriðja sæti var Atli Sveinbjörnsson. Anna Berglind Pálmadóttir kom fyrst kvenna í mark. Steinunn Lilja Pétursdóttir varð í öðru sæti og í þriðja varð Hildur Aðalsteinsdóttir

Alþjóðleg hlaupaveisla
Í ár tóku 153 erlendir hlauparar frá 32 mismunandi þjóðlöndum. Langflestir frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Mexikó, Frakklandi og Danmörku. Hengill Ultra er sannkölluð hlaupahátíð og Hveragerði heimabær mótsins breytist í höfuðstað utanvegahlaupara þessa helgi. Allir gististaðir og frábæru veitingastaðirnir í Hveragerði taka fagnandi á móti gestum og fullt um að vera fyrir áhorfendur og fjölskyldur hlaupara á meðan hlaupið fer fram

Hægt er er skoða öll úrslit hér

Ljósmyndir/Magnús Stefán Sigurðsson

Fyrri greinHún hataði lagið
Næsta greinÚtskriftar- og uppskeruhátíð Fræðslunetsins