Knattspyrnunámskeið Dagnýjar og Thelmu

Þann 5 og 6. desember munu knattspyrnukonurnar, Dagný Brynjarsdóttir og Thelma Björk Einarsdóttir, halda námskeið á Selfossi á vegum Study & Play og knattspyrnudeildar Selfoss.

Námskeiðið verður fyrir stelpur og stráka á 7 – 4 flokks aldri. Æft verður á laugardegi og sunnudegi á Selfossi og mun hver æfing standa yfir í 75 mínútur.

Farið verður yfir helstu atriði grunntækninnar, s.s. sendingar, skot, skallatækni, móttökur, snúninga, og fleira. Þar sem áhersla verður lögð á einstaklingsæfingar þá munu einungis sextán leikmenn komast á hvert námskeið.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst, studyplayusa@gmail.com þar sem fram þarf að koma nafn, kennitala, og flokkur. Námskeiðið kostar 5.500 kr.

Skipt verður í hópa eftir flokkum og æfa hópar á eftirfarandi tímum:

7. flokkur – 9:00 – 10:15
4. flokkur – 10:30 – 11:45
6. flokkur – 13:30 – 14:45
5. flokkur – 15:00 – 16:15

Fyrri greinHeildarveltan í nóvember rúmir 2,4 milljarðar króna
Næsta greinBorgardætur í Listasafninu