HSK hlaut Hvatningarverðlaun UMFÍ í þriðja sinn

Rakel og Guðríður glaðar með verðlaunin. Ljósmynd/HSK

Fern verkefni íþrótta- og ungmennafélaga hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ á 46. Sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði á dögunum.

Héraðssambandið Skarphéðinn hlaut hvatningarverðlaunin fyrir verkefni Ungmennafélags Selfoss og Íþróttafélagsins Suðra. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefnið að færa starf Íþróttafélagsins Suðra í eina af deildum Ungmennafélags Selfoss til að efla starf fyrir iðkendur með fötlun. Guðríður Aadnegard tók við hvatningarverðlaunum fyrir hönd HSK. Hún þakkaði Rakel Magnúsdóttur og bauð henni upp að taka á móti viðurkenningunni með sér, en Rakel kom að vinnu við sameininguna, sem svæðisfulltrúi á Suðurlandi.

Önnur héruð sem hlutu verðlaun voru Íþróttabandalag Reykjavíkur fyrir víðtækt átak Knattspyrnufélags Reykjavíkur í félagsmálum og forvörnum, Íþróttabandalag Akraness og Ungmennasamband Borgarfjarðar fyrir samstarf og sameiginlegar lausnir Sundfélags Akraness og sunddeildar Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi í þjálfaramálum og Héraðssamband Þingeyinga fyrir samþættingarverkefni Íþróttafélagsins Völsungs á Húsavík sem tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4–8 ára.

Þess má geta að þetta var í þriðja sinn sem HSK hlýtur Hvatningarverðlaun UMFÍ. Árið 2007 hlaut HSK verðlaunin fyrir framúrskarandi starf að kynningarmálum og 2016 hlaut HSK Hvatningarverðlaunin fyrir öflugt og metnaðarfullt starf Frjálsíþróttaráðs HSK.

Fyrri greinOpnunarviðburður Óperunnar í Skálholtskirkju
Næsta greinHvað ef stærsta áhættan er að breyta engu?