Hörkukeppni á Akureyri

Eric Máni Guðmundsson sigraði í unglingaflokki. Ljósmynd/UMFS

Þriðja umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram hjá Kappakstursklúbbi Akureyrar um síðustu helgi.

Rúmlega 85 þáttakendur voru skráðir til keppni og var hörku samkeppni í flestum flokkum. Selfyssingar náðu góðum árangri í brautinni; Eric Máni Guðmundsson sigraði í unglingaflokki, Alexander Adam Kuc varð í öðru sæti í MX2, Ásta Petrea Hannesdóttir varð í 4. sæti í kvennaflokki og Ragnheiður Brynjólfsdóttir varð í 3. sæti í kvennaflokk 30+.

Fjórða umferð Íslandsmótsins fer síðan fram á Motomos í Mosfellsbæ þann 12. ágúst næstkomandi.

Fyrri greinFjölbreytt fjölskyldu- og tónleikadagskrá í Hamingjunni
Næsta greinTveir í röð hjá Selfyssingum