Selfoss heimsótti ÍR í Breiðholtið í úrvalsdeild kvenna í handbolta í kvöld. Mikið jafnræði var með liðunum og lauk leiknum með 25-25 jafntefli.
Leikurinn var hnífjafn allan tímann, liðin skiptust á um að hafa forystuna en munurinn var aldrei meiri en 1-2 mörk. ÍR leiddi í hálfleik, 13-12.
Jafnræðið hélt áfram í seinni hálfleik, ÍR komst í 25-23 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir en Selfoss skoraði síðustu tvö mörkin og tryggði sér jafntefli en bæði lið fengu tækifæri til að skora sigurmarkið.
Harpa Valey Gylfadóttir var markahæst Selfyssinga með 9 mörk, Hulda Hrönn Bragadóttir skoraði 6, Sylvía Bjarnadóttir 3, Eva Lind Tyrfingsdóttir, Hulda Dís Þrastardóttir og Perla Ruth Albertsdóttir 2 og Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1.
Selma Þóra Jóhannsdóttir varði 4 skot í marki Selfoss.
Selfoss er í 6. sæti deildarinnar með 5 stig en ÍR er í 3. sæti með 9 stig.

