Hans Þór stigahæsti knapi sumarsins

Hans Þór Hilmarsson með farandbikarinn Öderinn. Ljósmynd/Aðsend

Fjórðu og síðustu skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins fóru fram á Brávöllum á Selfossi í dag, mánudaginn 29. ágúst. Veðuraðstæður voru með ágætum og prýðistímar náðust í öllum vegalengdum.

Þetta tímabil markar ákveðin tímamót fyrir Skeiðfélagið þar sem þetta var tíunda keppnistímabilið í röð sem haldið er eftir að Skeiðfélagið var vakið úr dvala sem það hafði legið í frá árinu 2009. Sumir af núverandi Skeiðfélagsmeðlimum hafa verið með frá upphafi og lagt sitt af mörkum við að halda heiðri skeiðkappreiða á lofti.

Hans Þór Hilmarsson er stigahæsti knapi sumarsins og hlaut hann því 100.000 króna gjafaúttekt í verslun Baldvins og Þorvaldar. Þau Guðmundur Árnason og Ragna Gunnarsdóttir í Baldvin og Þorvaldi hafa staðið ríkulega við bakið á Skeiðfélaginu síðastliðin ár og styrkt um öll verðlaun. Auk þess fékk Hans Þór til varðveislu farandbikarinn Öderinn sem gefinn er af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon.

Í 250 metra skeiði var það Konráð Valur Sveinsson sem fór með sigur af hólmi á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk á tímanum 22,23 sekúndum. Hann sigraði þá einnig keppni í 150 metra skeiði á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II á tímanum 14,15 sekúndum sem er næstbesti tími ársins í þeirri vegalengd. Í 100 metra skeiði var það hinsvegar Teitur Árnason sem var hlutskarpastur á Drottningu frá Hömrum II á tímanum 7,34 sekúndum sem er næstbesti tíminn í þeirri vegalengd í ár.

Á myndunum sem fylgja má sjá þrjá efstu knapa kvöldsins í hverri keppnisgrein auk Hans Þórs Hilmarssonar heildarsigurvegara. Með þeim á myndunum er Ragna Gunnarsdóttir frá Baldvin og Þorvaldi.

Heildarúrslit skeiðleika kvöldsins má nálgast hér fyrir neðan.

Fyrri greinÆgismenn sterkir á heimavelli
Næsta greinÞrír Sunnlendingar fengu afreks- og hvatningarstyrk frá HÍ