Hamar/Þór Íslandsmeistari í 12. flokki kvenna

Íslandsmeistarar Hamars/Þórs. Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson.

Lið Hamars/Þórs tryggði sér um síðustu helgi Íslandsmeistaratitilinn í 12. flokki kvenna í körfubolta eftir 2-0 sigur í einvígi gegn KR.

Hamar/Þór vann fyrri leik liðanna í Vesturbænum og tryggði sér svo titilinn með 65-56 sigri í æsispennandi leik tvö í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn.

Hildur Björk Gunnsteinsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 17 stigum, 8 fráköstum og 3,5 stoðsendingum í úrslitaeinvíginu.

Fyrri greinÍsfélagið segir upp öllu starfsfólki í Þorlákshöfn
Næsta greinStrangheiðarleg skjálftahrina við Húsmúla