Fyrirliði KFA í vínrautt

Ljósmynd/Selfoss fótbolti

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við varnarmanninn Geir Sigurbjörn Ómarsson um að leika með félaginu næstu tvö árin. Geir kemur til félagsins frá KFA þar sem hann var fyrirliði liðsins.

Geir er fæddur árið 2004 en þrátt fyrir ungan aldur á hann yfir 150 leiki fyrir meistaraflokk. Hann er örvfættur varnarmaður sem getur leikið sem miðvörður og bakvörður.

Geir þekkir það nú þegar að skila góðri frammistöðu á JÁVERK-vellinum en hann skoraði tvö mörk fyrir KFA í opnunarleiknum í 2. deild síðastliðið sumar þegar KFA fór með 2-4 sigur af hólmi. Eitt af vítapunktinum og annað stórkostlegt mark langt utan af velli.

Fyrri grein„Það eru alltaf einhverjir sem fara að gráta“