Mýrdalshlaupið var haldið í tíunda sinn síðastliðinn laugardag. Við ræsingu hlaupsins viðraði vel fyrir keppendur og Vík skartaði sínu fegursta. Þegar líða tók á keppnina urðu aðstæður sífellt meira krefjandi vegna suðaustan slagveðurs sem kom inn á landið um hádegi.
Þrátt fyrir þessar aðstæður var árangur keppenda með allra besta móti, og tvö brautarmet voru slegin, í karlaflokki í 21 km hlaupinu og í kvennaflokki í 10 km hlaupinu.
Keppnin í kvennaflokki í 21 km hlaupinu var mjög hörð en þær Halldóra Huld Ingvarsdóttir og Íris Anna Skúladóttir komu á sitthvorri sekúndunni í mark í 1. og 2. sæti, á tímunum 2:01,18 klst og 2:01,19 klst. Í þriðja sæti var Sigþóra Kristjánsdóttir, rúmum 3 mínútum síðar á tímanum 2:04,27 klst.
„Brautin gefur manni engan frið“
Í karlaflokki var það Þorsteinn Roy Jóhannsson sem kom fyrstur, á tímanum 1:41,58 klst, og á eftir honum komu þeir Snorri Björnsson á 1:42,54 klst og Halldór Hermann Jónsson á 1:46,29 klst. Þeir eru allir að æfa hjá Fjallahlaupaþjálfun, með nokkrum af bestu utanvegahlaupurum landsins.
Þorsteinn Roy setti nýtt brautarmet og sagði eftir hlaupið að hlaupið í ár hafi verið einstaklega sterkt, og væri hálfgert Íslandsmeistaramót í utanvegahlaupum. „Það voru bara svo margir sterkir á startlínunni, það eru bara allir þeir sterkustu mættir.“
Spurður út í brautina segir Þorsteinn þetta vera eitt skemmtilegasta niðurhlaup landsins. „Þessi braut gefur manni bara engan frið, hún er tæknileg og flókin og skemmtileg.“ Snorri og Halldór tóku undir orð Þorsteins og segja þetta eitt af fáum alvöru utanvegahlaupum á Íslandi. „Það er alvöru hækkun og svona, 1.100 metrar á 21 km, þetta er svona á erlendis-skala.“
Sölvi og Íris sigruðu í 10 km
Í 10 km hlaupinu voru hlutskörpust Sölvi Snær Egilsson á 44,45 mín og Íris Dóra Snorradóttir á 53,23 mín. Næstir í karlaflokki komu Ingi Páll Snæbjörnsson og Vilhjálmur Atlason og í 2. og 3. sæti í kvennaflokki urðu Dalrós Inga Ingadóttir og Lára Einarsdóttir. Íris Dóra setti brautarmet í 10km hlaupinu, en hún er að koma sterk inn í utanvegahlaupaheiminum um þessar mundir.
„þetta er skemmtileg braut, maður nær að keyra upp hraðann á beina kaflanum, svo komu brekkurnar og maður þurfti bara að tækla það og tækla alls konar. Þetta er mjög falleg leið og skemmtileg, sérstaklega gaman að geta tekið svolítið góðan endasprett á lokametrunum,“ segir Íris Dóra.
Victoria hleypur alltaf
Meðal keppenda var Sabina Victoria Reinholdsdóttir, kennari í Vík, en hún er sú eina sem hefur hlaupið í Mýrdalshlaupinu í öll þau tíu ár sem það hefur verið haldið. Victoria segir það skemmtilegasta við hlaupið sé að þarna hittist fyrir hlauparar á öllum aldri og öllum getustigum og takist á við fjöllin í Mýrdalnum saman.
„Þetta er erfitt hlaup, sama hvort þú ert áhugahlaupari eða reynslubolti og það er ákveðið afrek að klára það. Það skapast ákveðin stemning og samhugur í að tækla þetta öll saman,“ segir Victoria um Mýrdalshlaupið.
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannessson, veitti verðlaunin í hlaupinu og ávarpaði samkomuna. Móthaldarar voru alsælir með daginn en framkvæmd hlaupsins gekk vel og öll umgjörð þess var til fyrirmyndar. Hlaupið er skipulagt og haldið af sjálfboðaliðum í góðgerðarskyni og eru ýmis félagasamtök sem njóta góðs af framkvæmd hlaupsins, meðal annars Ungmennafélagið Katla, Jaðarsportklúbburinn Víkursport, Björgunarsveitin Víkverji og Kvenfélagið Ljósbrá. Verslunin Sportvörur er helsti samstarfs- og styrktaraðilli Mýrdalshlaupsins.