Frábær árangur á USA Cup

Lið 3. flokks karla fagnaði sigri á mótinu. Ljósmynd/Selfoss

Sjö lið frá knattspyrnudeild Selfoss héldu til Bandaríkjanna dagana 15.-23. júlí á stærsta knattspyrnumót Norður-Ameríku, USA Cup, sem haldið var í Blaine í Minnesota.

Í ár tóku 1.245 lið frá sautján löndum þátt á mótinu en Selfoss sendi til leiks tvö lið úr 2. flokki karla, eitt lið úr 2. flokki kvenna, tvö lið frá 3. flokki karla og tvö lið úr 3. flokki kvenna. Alls fóru 130 manns á USA Cup fyrir hönd félagsins, 118 keppendur og 18 starfsmenn og liðsstjórar, ásamt því að stór hópur foreldra fylgdi með sem stuðningsmenn.

Liðin spila fjóra leiki í riðlakeppni og eftir það tekur við úrslitakeppni þar sem sigurvegarinn fer áfram. Öll lið Selfoss komust upp úr sínum riðlum og í 8-liða úrslit, 2. flokkur kvenna fór í undanúslit og U15-lið 3. flokks karla gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið í sínum flokki.

Knattspyrnudeild Selfoss vill að koma á framfæri þökkum til allra þeirra leikmanna, þjálfara, liðstjóra og stuðningsmanna sem að þessari ferð komu en þetta er langstærsti hópur sem farið hefur í keppnisferð á vegum knattspyrnudeildar og fyrsti hópurinn síðan 2018 sem fer erlendis eftir heimsfaraldurinn.

Fyrri greinDjazz í Skálanum
Næsta greinSelfoss fær bandarískan framherja