Glímumótið Reykjavík Open – Sub Only 4 fór fram þann 31. október síðastliðinn í húsakynnum Reykjavík MMA. Glímufélagið Berserkir á Selfossi átti þar fimm öfluga fulltrúa sem stóðu sig með stakri prýði.
Þau Ingvar Freyr Símonarson og Hekla Dögg Ásmundsdóttir nældu sér bæði í bronsverðlaun í sínum flokkum. Árangur Ingvars er sérstaklega eftirtektarverður þar sem þetta var hans fyrsta mót, en hann vann allar sínar glímur með uppgjafartaki fyrir utan tap í undanúrslitum.
Fannar Júlíusson hafnaði í fjórða sæti í feikisterkum flokki og sýndi miklar framfarir í glímunni hjá sér. Þá enduðu þeir Daníel Sigurðsson og Þröstur Valsson báðir í fimmta sæti eftir harða keppni.

