Elvar knapi ársins hjá Geysi

Elvar Þormarsson. Ljósmynd/Geysir

Síðastliðið laugardagskvöld fór fram uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Geysis í Hvolnum á Hvolsvelli. Uppskeruhátíðin var virkilega vel sótt og áttu Geysismenn frábært kvöld.

Elvar Þormarsson var valinn knapi ársins hjá Geysi, sem og íþróttaknapi félagsins. Elvar varð í sumar tvöfaldur heimsmeistari, í gæðingaskeiði og 250 m skeiði, á Fjalladís frá Fornusöndum á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi.

Stjórn Geysis óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakkar öllum sem komu að hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Sérstakar þakkir fær Sláturfélag Suðurlands fyrir að styrkja okkur um úrvals lambakjöt sem Bragi Þór Hansson matreiddi snilldarlega með góðri aðstoð frá Kvenfélaginu Bergþóru.

Verðlaunahafar á uppskeruhátíðinni voru eftirtaldir:

Knapi Geysis
Elvar Þormarsson

Gæðingaknapi Geysis
Vignir Siggeirsson

Íþróttaknapi Geysis
Elvar Þormarsson

Skeiðskálin
Hans Þór Hilmarsson

Ungmenni Geysis
Jón Ársæll Bergmann

Heimahagabikarinn – Áhugamaður Geysis
Sarah Maagard Nielsen

Mjölnisbikarinn (Hæsta einkunn í tölti)
Arnhildur Helgadóttir og Vala frá Hjarðartúni (8.13)

Keppnishestabú Geysis
Strandarhjáleiga

Ræktunarbú Geysis
Fákshólar

Sjálfboðaliði Geysis
Páll Briem

Hryssubikar Geysis – Hlýtur sá Geysisfélagi sem er ræktandi og eigandi af hæst dæmdu hryssu í kynbótadómi á árinu.
Hrönn frá Fákshólum (8.55)

Stóðhestabikar Geysis – Hlýtur sá Geysisfélagi sem er ræktandi og eigandi af hæst dæmda stóðhest í kynbótadómi á árinu.
Geisli frá Árbæ (8.60)

Hæst dæmdu hross ræktuð af Geysisfélaga

7 vetra og eldri
Hryssa – Katla frá Hemlu – 8,79
Stóðhestar – Kraftur frá Eystra-Fróðholti – 8,46
6 vetra
Hryssa – Hrönn frá Fákshólum – 8,68
Stóðhestur – Geisli frá Árbæ – 8,60
5 vetra
Hryssa – Edda frá Rauðalæk – 8,37
Stóðhestur – Þórshamar frá Reykjavík – 8,45
4 vetra
Hryssa – Nóta frá Sumarliðabæ 2 – 8,37
Stóðhestur – Álfatýr frá Skíðbakka I – 7,90

Fyrri greinGuðni útnefndur samborgari ársins
Næsta greinFrábær fimleikahelgi að baki á Selfossi