Elvar íþróttamaður ársins í Rangárþingi eystra

Elvar Þormarsson. Ljósmynd/Rangárþing eystra

Elvar Þormarsson, Hestamannafélaginu Geysi, var valinn íþróttamaður ársins 2022 í Rangárþingi eystra. Kjörinu var lýst á 17. júní hátíðarhöldunum á Hvolsvelli.

Elvar átti frábært keppnisár í gæðingaskeiði með hryssuna Fjalladís frá Fornusöndum og sigruðu þau öll stórmót ársins, Reykjavíkurmeistaramót, Íslandsmót og Landsmót. Ásamt þessu gerði hann góða hluti með hestinn Pensil frá Hvolsvelli en þeir stóðu til að mynda ofarlega í B flokk gæðinga á landsmóti hestamanna.

Fimm aðrir íþróttamenn fengu tilnefningu í kjörinu en það voru þau Andri Már Óskarsson, Golfklúbbi Selfoss, Bjarni Þorvaldsson, Knattspyrnufélagi Rangæinga, Ívan Breki Sigurðsson, knattspyrnumaður hjá Umf. Selfoss, Katrín Eyland Gunnarsdóttir, frjálsíþróttakona úr Íþróttafélaginu Dímoni og Óðinn Magnússon, Skotfélaginu Skyttum.

Valið á íþróttamanni ársins fer fram með þeim hætti að íþróttafélögin og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi eiga möguleika á að tilnefna íþróttamenn en það er svo Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd sem velur úr þeim sem eru tilnefndir. Kolbrá Lóa Ágústsdóttir, varaformaður nefndarinnar, flutti ávarp og afhenti verðlaunin.

Fyrri greinJónsmessuganga á Ingólfsfjall
Næsta greinStanda fyrir skemmtimóti til styrktar Bergrós