Dímon-Hekla hraðmótsmeistari í blaki

Þátttökuliðin frá Dímon-Heklu urðu í fyrsta og þriðja sæti. Ljósmynd/HSK

Hraðmót HSK í blaki kvenna fór fram á Flúðum í gær, 10. október og tóku sjö lið þátt í mótinu. Mótið var nú haldið í 28. sinn, en það var fyrst haldið árið 1995.

Lið Dímon-Heklu A vann alla sína sex leiki á mótinu og tryggði sér hraðmótsmeistaratitil HSK í þriðja sinn, en liðið vann keppnina 2014 og 2021. Þess má geta að Dímon hefur að auki unnið í tvígang, árin 2003 og 2004.

Hrunakonur unnu fimm leiki á mótinu og urðu í öðru sæti og B lið frá Dímon-Heklu vann fjóra leiki og varð í þriðja sæti.

Hraðmót HSK í blaki karla fer fram á Laugarvatni í kvöld, 11. október og hefst kl. 20:00. Lið Hamars, Hrunamanna og Laugdæla eru skráð til leiks.

Fyrri greinEkki sektað fyrir nagladekkin
Næsta greinGul viðvörun: Snjókoma og lélegt skyggni