Davíð krýndur Suðurlandsmeistari

Davíð Kjartansson. Ljósmynd/Niki Riga

Suðurlandsmótið í skák var haldið í Fischersetrinu á Selfossi síðastliðinn laugardag. Þar mættu 22 skákmenn til leiks og voru tefldar átta umferðir.

Róbert Lagerman bar sigur úr býtum og vann alla sína andstæðinga. Davíð Kjartansson endaði í öðru sæti með 7 vinninga og var jafnframt krýndur Suðurlandsmeistari þriðja árið í röð þar sem hann varð efstur heimamanna. Erlingur Jensson varð þriðji.

Efstur skákmanna undir 18 ára var Gabriel Landmark frá Írlandi.

Ari Björn Össurarson annaðist framkvæmd mótsins og sigurvegarinn Róbert Lagerman var skákdómari.

Lokaniðurstöður mótsins má sjá hér

Fyrri greinCircula/Recoma valið á fjárfestahátíð Norðanáttar
Næsta greinVíkurskóli og Katla jarðvangur hlutu menntaverðlaun Suðurlands