Dagmar Sif valin í úrvalshóp FRÍ

Dagmar Sif Morthens. Ljósmynd/UMFS

Dagmar Sif Morthens, Umf. Selfoss, hefur verið valin í Úrvalshóp Frjálsíþróttasambands Íslands en hún náði inn í hópinn með góðum árangri í spjótkasti.

Fyrir voru ellefu unglingar af sambandssvæði HSK í hópnum og er Dagmar Sif sú tólfta til að ná lágmarki. Hún kastaði 500 gr spjóti 38,49 m síðastliðið sumar en lágmarkið í hópinn er 38 m. Af einhverjum orsökum þá fór þessi árangur hennar fram hjá þeim sem að yfirfara úrslit sumarsins með tillliti til Úrvalshópsins og að sjálfsögðu átti hún að fá boð í hópinn í haust þegar hópurinn var valinn.

Ströng lágmörk eru inn í úrvalshópinn og þess vegna er það frábær árangur hjá Sunnlendingum að eiga tólf keppendur í hópnum.

Fyrri grein„Það var bara að hrökkva eða stökkva – og við stukkum“
Næsta greinLenti í árekstri við frú Vigdísi