Selfyssingar sitja kirfilega fastir við botninn á úrvalsdeild karla í handbolta eftir stórt tap í uppgjöri tveggja neðstu liðanna í kvöld. Selfoss mætti HK á útivelli og tapaði 34-22.
Selfoss byrjaði betur í kvöld, skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og komst í 2-6. Þá komu fimm mörk í röð frá HK sem hélt forystunni allt eftir það og staðan var 16-10 í hálfleik.
Selfyssingar sáu ekki til sólar í seinni hálfleiknum og HK náði mest þrettán marka forskoti seint í leiknum.
Ragnar Hilmarsson var markahæstur Selfyssinga með 5 mörk, Anton Breki Hjaltason og Tryggvi Sigurberg Traustason skoruðu 4, Hannes Höskuldsson 3, Valdimar Örn Ingvarsson 2 og þeir Hákon Garri Gestsson, Guðjón Óli Ósvaldsson, Sölvi Svavarsson og Jónas Karl Gunnlaugsson skoruðu allir 1 mark.
Alexander Hrafnkelsson varði 6 skot í marki Selfoss og var með 19% markvörslu og Ísak Kristinn Jónsson varði 1 skot og var með 11% markvörslu.
Eftir níu umferðir er Selfoss með 1 stig á botni deildarinnar, fjórum stigum á eftir Stjörnunni sem er í 10. sætinu. HK lyfti sér upp í 9. sætið með sigrinum í kvöld og er með 6 stig.

