Bergrós til Arezzo á Ítalíu

Bergrós Ásgeirsdóttir. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Knattspyrnukonan Bergrós Ásgeirsdóttir frá Selfossi hefur samið við ítalska félagið Arrezzo.

Félagið er systurklúbbur ítalska stórliðsins Fiorentina. Arrezzo leikur í Serie B en tímabilið á Ítalíu er nýfarið af stað.

Bergrós, sem er vængbakvörður, hefur leikið 145 leiki fyrir Selfoss, þar af 90 í efstu deild. Hún lék 17 leiki með Selfoss á nýafstöðnu tímabili og skoraði í þeim eitt mark.

Fyrri greinSeldu húsið sitt til að opna staðinn
Næsta greinEftirsóttar lóðir fyrir verslun og þjónustu á Flúðum