Barbára komin heim

Barbára Sól og Jón Steindór Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, handsala samninginn. Ljósmynd/Selfoss

Barbára Sól Gísladóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Selfoss til tveggja ára.

Barbára Sól var lánuð til danska úrvalsdeildarfélagsins Bröndby síðasta sumar og hafði danska liðið áhuga á því að hafa hana áfram í sínum röðum á næsta tímabili. Barbára valdi hins vegar að koma aftur heim á Selfoss, þar sem spennandi tímar eru framundan á bökkum Ölfusár.

Barbára, sem er 20 ára, hefur verið lykilmaður í liði Selfoss undanfarin fimm ár enda fjölhæfur leikmaður og sterk bæði í vörn og sókn. Hún hefur spilað 108 meistaraflokksleiki fyrir félagið og samtals 73 leiki í efstu deild á Íslandi og í Danmörku. Hún spilaði sína fyrstu A-landsleiki á síðasta ári og á að baki á fjórða tug unglingalandsleikja.

„Það er gott að vera komin heim og er ég mjög spennt fyrir komandi tímabili með Selfoss. Margir nýir hlutir að gerast, frábær aðstaða í nýrri knattspyrnuhöll og nýr þjálfari sem er með mikla reynslu og virðist mjög spennandi. Ég sjálf kem reynslunni ríkari frá Bröndby og ætla að nýta mér hana til þess að koma liðinu mínu sem lengst í sumar,“ segir Barbára Sól.

Fyrri greinHugleiðingar Vilborgar í Risinu
Næsta greinÞór valtaði yfir KR