
Verkefnið Allir á bak, sem Elísabet Sveinsdóttir hefur frumkvæði að og umsjón með hjá Hestamannafélaginu Sleipni á Selfossi, hefur hlotið 200.000 króna styrk úr Samfélagsstyrk Krónunnar árið 2026.
Samfélagsstyrkur Krónunnar er veittur árlega til verkefna sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög verslana fyrirtækisins. Meðal áhersluþátta eru börn og ungmenni, hreyfing og heilbrigður lífsstíll, umhverfisvitund og sjálfbærni, auk uppbyggingar samfélagsins, einkum á landsbyggðinni.
Verkefnið Allir á bak hófst hjá Sleipni í mars síðastliðnum og felst í sérstöku reiðnámskeiði fyrir börn með sérþarfir og fjölbreyttar stuðningsþarfir. Markmiðið er að gefa börnunum tækifæri til að kynnast hestum, njóta samveru með þeim og upplifa gleðina sem fylgir hestamennsku. Sérstakur búnaður hefur verið keyptur til að mæta þörfum barnanna og auðvelda þeim þátttöku.
Mikilvægur stuðningur við þróun verkefnisins
„Fyrstu námskeiðin gengu vonum framar. Aðsókn var mjög góð og ánægjulegt að fylgjast með gleði barnanna og þeim framförum sem þau tóku á skömmum tíma. Stefnt er að því að næstu námskeið fari fram í nóvember. Styrkurinn er mikilvægur stuðningur við áframhaldandi þróun verkefnisins og það góða starf sem þar fer fram. Hann stuðlar að því að fleiri börn fái tækifæri til að taka þátt í hestamennsku á sínum forsendum og njóta þeirra jákvæðu áhrifa sem samvera við hesta getur haft,“ segir í tilkynningu frá Sleipni.
Elísabet og Álfheiður Embla Sverrisdóttir, tóku á móti styrknum í Krónunni á Selfossi síðastliðinn föstudag. Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að Álfheiður Embla hefur sjálf tekið þátt í námskeiðinu og sýnt framúrskarandi framfarir á stuttum tíma. Hún hefur jafnframt verið dugleg að mæta í Sleipni og fara á hestbak þegar boðið er uppá að teyma undir börnum.
„Hestamannafélagið Sleipnir er afar þakklátt fyrir stuðning Krónunnar við verkefnið Allir á bak. Styrkurinn er hvatning til að halda áfram að skapa jákvætt, aðgengilegt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börn fá að njóta sín, upplifa árangur og eiga góðar stundir í hestamennsku,“ segir ennfremur í tilkynningunni.
