Afgreiddu leikinn í 1. leikhluta

Shawnteanna Tillman skoraði 22 stig fyrir Þór. Ljósmynd/Selfoss karfa

Þór Þorlákshöfn tók á móti Aþenu í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Úrslitin voru ráðin eftir 10 mínútna leik en lokatölur urðu 86-59.

Þórsarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og leiddu 38-8 að loknum 1. leikhluta. Staðan í hálfleik var 60-20.

Leikurinn var jafnari í seinni hálfleik þar sem gestirnir söxuðu forskot Þórsliðsins lítillega niður en sigur Þórs var aldrei í hættu.

Shawnteanna Tillman var stigahæst hjá Þór en hún skoraði 22 stig og Antoaneta Alexe kom næst henni með 17 stig.

Þór Þ er í toppsæti deildarinnar með 6 stig en Aþena er í 10. sæti með 2 stig.

Þór Þ.-Aþena 86-59 (38-8, 22-12, 9-17, 17-22)
Tölfræði Þórs: Shawnteanna Tillman 22/6 fráköst/5 stoðsendingar/7 stolnir, Antoaneta Alexe 17/5 fráköst, Jóhanna Ýr Ágústsdóttir 16, Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir 9, Sigrún Elfa Ágústsdóttir 7/8 fráköst, Dagrún Inga Jónsdóttir 6/8 fráköst/5 stolnir, Þóra Auðunsdóttir 4, Jara Björg Gilbertsdóttir 3, Andrea Ösp Gunnsteinsdóttir 2.

Fyrri greinFerðaþjónustan: Úr öskunni í eldinn