50 ára afmælishlaup Bláskógaskokks tókst vel

Við rásmarkið í 16 mílum. Ljósmynd/Engilbert Olgeirsson

Alls voru það 43 keppendur sem tóku þátt í 50 ára afmælishlaupi Bláskógaskokks HSK sem haldið var síðastliðinn sunnudag í blíðskaparveðri.

Tímamótanna var minnst sérstaklega í hlaupinu, en fram kom við setningu hlaupsins að það hafi verið þeir Brynleifur Steingrímsson læknir og Leif Österby hárskeri sem hafi verið aðalhvatamennirnir að halda fyrsta hlaupið árið 1972.

Börkur Þórðarson kom fyrstur í mark í 10 mílna hlaupi karla á tímanum 61,56 mín og Andrea Kolbeinsdóttir vann kvennaflokkinn á tímanum 66,11 mín. Þau fengu í sérverðlaun gjafabréf frá fyrirtækjunum Fætur toga og Hótel Örk. Þess má geta að brautarmetin í hlaupinu eiga þau Kári Steinn Karlsson og Marta Ernstsdóttir. Kári hljóp árið 2010 á 53,51 mín og Marta hljóp vegalengdina á 60,35 mín árið 2006.

Eyþór Birnir Stefánsson kom fyrstur í mark í 5 mílna hlaupinu á 36,49 mín, sem er HSK met í fjórum aldursflokkum frá 15-22 ára. Áslaug Karlsdóttir vann í kvennaflokki á 44,30 mín. Þau fengu gjafabréf frá Hótel Örk í sérverðlaun.

Fleiri HSK met voru sett í hlaupinu, en Jórunn Viðar Valgarðsdóttir og Ingileif Auðunsdóttir settu báðar HSK met í sínum aldursflokkum í 5 mílna hlaupinu.

Það var Snæbjörn Sigurðsson í Efstadal sem afhenti verðlaun, en hann vann drengjaflokkinn í fyrsta Bláskógaskokkinu árið 1972. Auk sérverðlauna voru veitt svokölluð útdráttarverðlaun sem voru í boði Run2. Þessum fyrirtækjum, auk Fontana á Laugarvatni er þakkaður stuðningurinn við hlaupið.

Heildarúrslit hlaupsins eru á www.timataka.net.

Keppendur í 5 mílna hlaupinu. Ljósmynd/Magnús Jóhannsson
Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í 10 mílna hlaupinu. Ljósmynd/Magnús Jóhannsson
Boðið var upp á afmælisköku. Ljósmynd/Engilbert Olgeirsson
Sigurvegarar karla og kvenna í báðum vegalengdum, ásamt Snæbirni Sigurðsyni einum af sigurvegurunum úr fyrsta hlaupinu 1972. Ljósmynd/Engilbert Olgeirsson
Fyrri greinKvennakór Hornafjarðar syngur í Guðríðarkirkju í kvöld
Næsta greinRáðning sveitarstjóra í Rangárþingi eystra