44 keppendur í Bláskógaskokki

Ljósmynd/HSK

Bláskógaskokk HSK var haldið sunnudaginn 13. júní síðastliðinn. Samtals tóku 44 keppendur þátt í hlaupinu, 31 hljóp 10 mílur og 13 manns hlupu fimm mílur. Framkvæmd hlaupsins gekk vel, þrátt fyrir leiðindaveður.

Steinunn Lilja Pétursdóttir kom fyrst í mark í kvennaflokki í 10 mílum á 1:20,37 klst og í karlaflokki var það Sölvi Sturluson sem sigraði á 1:14,10 klst. Sigmar Egill Baldursson kom fyrstur í mark í styttri vegalengdinni á 39:52 mín og í kvennaflokki var það Þórdís Valsdóttir á tímanum 50:50 mín. Sigurvegararnir fengu sérverðlaun sem var gisting á Hótel Örk. Þá er Fontana á Laugarvatni þakkaður stuðningurinn við hlaupið.

Heildarúrslit eru á timataka.net og fleiri myndir má sjá á hsk.is.

Á næsta ári verður afmælishlaup, en þá verða 50 ár liðin frá því fyrsta Bláskógaskokkið var haldið árið 1972.

Fyrri greinÞrjú slys á sama tíma
Næsta greinÖlvaður fór útaf í Þrengslunum