Vilja varanlega heimavist fyrir FSu

Fjölbrautaskóli Suðurlands. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Engin heimavist er fyrir nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands þetta skólaárið. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, lagði fram þingsályktunartillögu á Alþingi í gær þar sem óskað var eftir að ráðist verði í uppbyggingu varanlegrar heimavistar í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila.

Ingveldur Anna, fyrsti flutningsmaður tillögunnar, sagði í framsöguræðu sinni að skortur á heimavist skerði möguleika ungmenna af öllu Suðurlandi til að sækja nám við skólann, sérstaklega þeirra sem búa í dreifbýli og eiga ekki raunhæfan kost á daglegum samgöngum. Um 1.150 nemendur eru við FSu.

„Þetta skipti rosalega miklu máli. Ég hafði ekki kost á því að búa hjá ættingjum og var búsett undir Eyjafjöllum, það langt frá að almenningssamgöngur voru ekki möguleiki. Þannig að vistin var minn valkostur á að búa á Selfossi til þess að geta stundað nám við FSu,“ segir Ingveldur Anna í samtali við sunnlenska.is.

„Ég er búin að vera ræða við vinkonur mínar síðustu daga, hvernig það var að vera á vistinni og við erum allar sammála því að það hefði ekki verið nærri því jafn gaman að vera í skólanum ef vistin hefði ekki verið til staðar. Þetta er líka mjög þroskandi fyrir ungmenni, að þurfa búa og þvo þvottinn sinn, elda mat og fleira,“ segir Ingveldur Anna enn fremur.

Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ljósmynd/Aðsend

Heimavistarmál lengi verið í óvissu
Ekki tókst að finna viðeigandi húsnæði fyrir nemendur FSu fyrir skólaárið 2026-2027 en heimavistarmál FSu hafa verið í óvissu um árabil. Heimavistin sem var starfrækt að Eyravegi 26 lagðist af árið 2016 þegar leigusamningur rann út. Árið 2020 var gerður samningur um afnot af húsnæði Selfoss Hostel fyrir nemendur en sú lausn var ekki talin fullnægjandi til framtíðar.

Tillagan gerir ráð fyrir að einkaaðilar geti komið að fjármögnun, uppbyggingu og rekstri heimavistarinnar. Hið opinbera myndi gera langtímaleigusamning um afnot af húsnæðinu yfir skólaárið en það yrði nýtt fyrir ferðamenn yfir sumarmánuðina. Með þessu fyrirkomulagi er stefnt að því að nýta húsnæðið allt árið og skapa tekjur sem gætu lækkað heildarkostnað verkefnisins. Jafnframt gæti samstarfið flýtt fyrir uppbyggingu varanlegrar heimavistar.

Ingveldur Anna lagði áherslu á það í ræðunni sinni að ný heimavist þyrfti að vera sérstaklega hönnuð með þarfir nemenda í huga. Tryggja þyrfti meðal annars námsaðstöðu, sameiginleg rými, öryggi, umsjón og möguleika á helgardvöl. Hagsmunir nemenda ættu ávallt að hafa forgang yfir skólaárið.

Þess má geta að tillagan var áður lögð fram árið 2025 en hlaut ekki afgreiðslu þá.

Fyrri greinÖllum boðið í 5 ára afmæli miðbæjarins