
Nýverið opnaði Fish & chips veitingastaður að Smiðjuvegi 7 í Vík í Mýrdal. Veitingastaðurinn, sem fyrir er við Mývatn, hlaut alþjóðleg verðlaun fyrr á þessu ári fyrir besta fisk og franskar réttinn utan Bretlands.
Fish & Chips staðurinn er staðsettur í glænýju húsnæði sem Penninn ehf. reisti en húsnæðið opnaði í apríl á þessu ári. Þar eru einnig til húsa Penninn-Eymundsson, ráðhús Mýrdalshrepps og Apótekarinn. Mikil ánægja hefur verið meðal Mýrdælinga með þetta nýja húsnæði og þá auknu þjónustu sem hefur fylgt tilkomu þess.
Hugmyndin að Fish & Chips staðnum í Vík kviknaði í eigendahópnum fyrir nokkrum árum. „Við vorum alltaf með þetta á bak við eyrað þar til við fengum upp í hendurnar tækifæri sem við gátum ekki sleppt. Eigendur Pennans létu byggja hérna stórt og fallegt hús og við vorum svo heppin að fá eitt pláss þar inni,“ segir Unnur Sigurðardóttir, einn af eigendum staðarins.
Fyrirtækið Fish & Chips Lake Mývatn var stofnað árið 2021 af tvennum vinahjónum; Unni og eiginmanni hennar, Hauki Eiðssyni og Stefáni Guðmundssyni og eiginkonu hans, Jóhönnu S. Svavarsdóttur. Seinna komu hjónin Sigurgeir Pétursson og Sarah Pétursson í félagið. Fish & Chips Lake Mývatn opnaði vorið 2022 og hefur hann vaxið og blómstrað síðan.

Þakklát íbúum Víkur
Unnur segir að allt hafi farið á fullt um leið og þau fengu úthlutað plássi í húsnæði Pennans nú í júní. „Við þurftum að ganga frá leyfismálum og svo var bara farið á fullt í að útbúa eldhúsið og kaupa allar græjur. Undirbúningurinn gekk nokkuð vel, við erum reynslunni ríkari af því að reka Fish & Chips Lake Mývatn og vissum því ágætlega hvað þurfti að gera.“
„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og við erum sérstaklega þakklát íbúum Víkur sem hafa tekið okkur mjög vel og eru allir af vilja gerðir að hjálpa til. Við erum ánægð með byrjunina, erum bara rétt komin af stað og mjög lítið búin að auglýsa, við erum að fara að ganga í það verk núna og reyna að koma okkur á kortið.“

Vita upp á hár hvað er besti fiskurinn
Unnur segir að frá upphafi hafi þau lagt ofuráherslu á gæði hráefnis. „Við kaupum sjófrystan þorsk af Sólberginu ÓF sem Ísfélagið gerir út. Við erum sex eigendur fyrirtækisins og þrír eru sjómenn og af sjómönnum komnir. Þeir vita upp á hár hvað er besti fiskurinn og gefa engan slaka þar á. Við leggjum líka áherslu á stöðugleika, það er að þú fáir alltaf það sama, hvort sem þú kemur til okkar á morgun eða eftir ár, að rétturinn smakkist alltaf eins.“
„Þá erum við með tvær tegundir af heimatilbúnum sósum, tartarsósu og það sem við köllum Fjölskyldusósu. Starfsfólkið okkar gerir þær daglega eftir nákvæmum uppskriftum sem koma frá tveimur af eigendunum.“
„Við teljum að vinsældirnar komi af þessum stöðugleika og meðmælum viðskiptavina okkar, það hefur spurst út að við bjóðum upp á góðan úrvals fisk sem þú getur treyst á að smakkist alltaf eins.“

Óskarinn í Fish & Chips bransanum
Sem fyrr segir vann veitingastaðurinn til alþjóðlegra verðlauna fyrr á þessu ári. „Við unnum til verðlauna úti í London í febrúar síðastliðnum með veitingastaðinn okkar í Mývatnssveit, Fish & Chips Lake Mývatn. Það eru mjög stór samtök í Bretlandi sem heita National Federation of Fish Friers (NFFF). Þau eru með verðlaunaafhendingu einu sinni á ári þar sem valdir eru bestu Fish & Chips veitingastaðirnir í Bretlandi. Við unnum titilinn International operator of the year 2026 svo við erum besti Fish & Chips veitingastaðurinn utan Bretlands,“ segir Unnur en þess má geta að verðlaunin teljast meðal þeirra virtustu í heimi á sviði fiskrétta.
„Þetta var gríðarlegur heiður og frábær upplifun að vera þarna, menn tala um að þetta sé „Óskarinn“ í Fish & Chips bransanum. Það er auðvitað ekki spurning að leyfa Sunnlendingum að njóta líka og opna „systur veitingastað“ í Vík.“
Fish and chips skammtarnir eru afgreiddir í gegnum verslun Pennans. „Við erum með lúgu sem snýr inn í verslun Pennans, svo fólk getur valið um að taka með sér heim eða þá er líka hægt að fá sér sæti inni í Pennanum, þar eru nú þegar borð og stólar og von er á fleirum. Veitingastaðurinn er opinn alla daga frá 11:30-20:00,“ segir Unnur að lokum.

