Vel heppnuð afmælishátíð

Um tvöhundrið gestir mættu á hátíð í tilefni 250 ára afmælis Hússins á Eyrarbakka, sem haldin var á dögunum. Svo margir, að færa þurfti hátíðina úr Húsinu sjálfu.

„Þegar ég tók eftir því að fólk stóð orðið í hverju skoti og undir hverri súð, tók ég ákvörðun um að færa dagskrána inn í Eyrarbakkakirkju,“ sagði Lýður Pálsson, safnstjóri í samtali við Sunnlenska.

Hann kvaðst ánægður með gestafjöld­ann, hafði mögulega gert ráð fyrir um hundrað manns, eins og hann orðaði það. „Það fengu allir kaffiveitingar á eftir,“ bætti hann við ánægður.

Hann sagði marga langt að komna, ekki síst þá sem höfðu einhverja tengingu við Húsið, afkomendur gamalla faktora og kaupmanna, sem í Húsinu voru.

„Það er gaman að hitta þetta fólk, þetta er fólk sem kemur oft á safnið og er annt um þessa gömlu miðstöð Suðurlands,“ bætti Lýður við.

Fyrri greinÞú þarft ekki að vera góður í fótbolta til að vera góður í fótboltagolfi
Næsta greinFerðamaður á ofsahraða í Flóanum