Vel fylgst með ám og lækjum á Suðurlandi

Skógafoss hefur stundum verið vatnsmeiri en í morgun, þegar lögregla fór þar hjá og tók þessa mynd.

Aðgerðastjórn almannavarna á Suðurlandi kom saman til upplýsingafundar í dag þar sem farið var yfir veðurspá morgundagsins með Veðurstofunni.

Veðurspá fyrir nóttina í nótt gerir ráð fyrir úrkomubakka austan Mýrdalssands í kvöld með allmikilli snjókomu sem getur orðið til þess að færð þar spillist. Þá eru líkur á að ferðaveður verði vont á fjallvegum, t.d. Hellisheiði, seint í nótt og fram undir morgun meðan úrkoma verður í formi snjókomu eða slyddu.

Sem fyrr eru íbúar í umdæminu hvattir til að hreinsa frá niðurföllum og hreinsa grýlukerti og snjóhengur af þökum. Þá er ljóst að svellbunkar verða víða og flughált þannig að mannbroddar verða nauðsynlegur staðalbúnaður til göngu.

Ekki ráðlegt að reyna við Reykjadal
Vel er fylgst með stöðu mála hvað varðar ár og læki í umdæminu, einkum vestan til. Ljóst er til dæmis að ekki verður ráðlegt að reyna við gönguferðir í Reykjadali enda mikil úrkoma á Helliheiði með tilheyrandi vatnavöxtum í Varmá ofan á glæra svell á gönguleiðinni.

Stórflóð ólíkleg
Tímalengd hlýindakaflans og úrkomumagnið mun að líkindum ekki nægja eitt og sér til að valda stórflóðum í Hvítá og Ölfusá. Hinsvegar er engin leið að sjá fyrir um stíflumyndanir vegna íss og því full ástæða fyrir þá sem eiga útigang á þekktum flóðasvæðum að færa hann í hærra land. Þá ber alltaf að fara varlega nærri straumvatni þar sem hætta er á að ár ryðji sig.

Gert er ráð fyrir því að aðferðastjórn fundi aftur í fyrramálið og endurmeti stöðuna.

Fyrri greinSr. Arnaldur fer austur
Næsta greinFærð gæti spillst vegna veðurs