Veitingastað lokað eftir innbrot og hnífaárás

Lögreglan var á vakt við húsið frá klukkan sjö í morgun og fram eftir degi. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Lögreglan var kölluð út snemma í morgun að veitingastað við Austurveg á Selfossi þar sem brotist hafði verið inn í gistiaðstöðu starfsmanna.

Sá er braust inn var enn á staðnum þegar lögreglan kom á vettvang og var vopnaður hníf. Hann hafði skorið húsráðanda í aðra höndina þegar sá síðarnefndi ætlaði að stöðva för hans.

Lögreglumenn handtóku gerandann á staðnum og var hann fluttur í fangageymslu, en húsráðandi var fluttur á sjúkrahús til meðhöndlunar á skurðsári.

Vegna aðbúnaðar á staðnum hafði lögregla samband við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og Brunavarnir Árnessýslu sem komu á staðinn og ákváðu að loka á starfsemi veitingastaðarins tímabundið. Staðurinn var innsiglaður og var lögreglumaður á vakt við húsið fram eftir degi.

Rannsókn málsins er enn í gangi hjá lögreglunni á Suðurlandi.

Fyrri greinÁrbær verður Hjallastefnuleikskóli
Næsta greinHrekkjavökuratleikur á Selfossi