Vegleg gjöf frá öllum kvenfélögum sýslunnar

Fulltrúar kvefnfélaganna ásamt heilbrigðisstarfsfólki sem tók á móti gjöfunum. Ljósmynd/HSU

Heilsugæslunni í Rangárþingi bárust höfðinglegar gjafir á dögunum frá kvenfélögum í Rangárvallassýslu. Gjafirnar sem um ræðir eru Medela brjóstadæla að verðmæti 338 þúsund króna og gulumælir fyrir nýbura að verðmæti tæplega 1,4 milljón króna.

Tækin koma að góðum notum en þau munu létta nýbökuðum foreldrum lífið þegar á þarf að halda og geta m.a. fækkað blóðprufum nýbura og ferðum á Selfoss ef grunur er um nýburagulu.

Það voru öll kvenfélög Rangárvallasýslu sem tóku þátt í gjöfinni: Kvenfélagið Bergþóra V-Landeyjum, Eining Hvolhreppi, Eining Holtum, Eygló V-Eyjafjöllum, Fjallkonan A-Eyjafjöllum, Framtíðin Ásahreppi, Freyja A-Landeyjum, Hallgerður Fljótshlíð, Lóa Landssveit, Sigurvon Þykkvabæ og Unnur Rangárvöllum.

Í tilkynningu frá HSU segir að það sé ómetanlegt að finna þann hlýhug og stuðning sem gjöfinni fylgir og heilsugæslan þakkar kvefnfélögum Rangárvallasýslu kærlega fyrir gjöfina.

Fyrri greinMagnaðar sögur af völvuleiðum
Næsta grein54 sunnlenskar fjölskyldur fá matarúttekt frá Krónunni