Vegabréf Fischers komin á Selfoss

Stefán Haukur Jóhannsson, sendiherra, afhendir Aldísi Sigfúsdóttur vegabréfin. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Við tiltekt í íslenska sendiráðinu í Tókýó í Japan í vor dúkkaði upp útrunnið og gatað „vegabréf útlendings“ í nafni Roberts nokkurs James Fischer.

Þarna var um að ræða vegabréf skáksnillingsins Bobby Fischer, sem gefið var út í febrúar 2005 til að koma honum til Íslands, þar sem hann fékk síðar íslenskt ríkisfang. Í þessu vegabréfi var hann skráður „ríkisfangslaus“.

Sendiherra Íslands í Tókýó, Stefáni Hauki Jóhannssyni, varð strax hugsað til Fischersetursins á Selfossi en svo vildi til að hann hafði fyrir skemmstu verið að aðstoða Setrið við að komast í samband við Miyoko Watai, ekkju Fischers, sem er frá Japan og býr þar.

Sendiráðið leitaði til utanríkisráðuneytisins hvort leyfilegt væri að afhenda Fischersetrinu vegabréfið og þá kom í ljós að annað vegabréf hafði nýverið fundist í ráðuneytinu, almennt vegabréf fyrir íslenska ríkisborgarann Bobby Fischer, sem gefið var út í mars 2005.

Niðurstaðan varð sú að utanríkisráðuneytið myndi afhenda Fischersetrinu bæði vegabréfin til ótímabundinnar vörslu og sýningar sem safngrip, með þeim fyrirvara að ráðuneytið gæti kallað það til sín ef þörf krefði.

Svo skemmtilega vildi til að Stefán Haukur sendiherra var staddur á landinu þegar niðurstaðan lá fyrir og mælti hann sér mót við Aldísi Sigfúsdóttur í Fischersetrinu og afhenti henni vegabréfin og gat þannig fylgt sögunni eftir frá upphafi til enda.

Frá þessu er greint á Facebooksíðu utanríkisráðuneytisins.

Fyrri greinÖryggi og velferð í Uppsveitum
Næsta greinÞrjú útköll í Þórsmörk