Varað við mikilli úrkomu og asahláku

Spáð er talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu á fimmtudag. Á laugardag hlýnar mjög ört með suðaustan stormi og talsverðri rigningu.

Almannavarnir sendu í dag frá sér tilkynningu með upplýsingum frá Veðurstofunni þar sem fram kemur að gera megi ráð fyrir vatnavöxtum á sunnan- og vestanverðu landinu.

Fólk er beðið um að sýna aðgát í nágrenni vatnsfalla og sérstaklega ef fara þarf yfir ár, þar sem vöð geta orðið varhugaverð.

Þetta verður fyrsta asahláka ársins með mikilli úrkomu og leysingum svo að líklegt er að afrennsli verði mjög mikið.

Fyrri greinSkafrenningur á Hellisheiði
Næsta greinMeiriháttar grænmetisréttur