UTU tekur við seyruverkefninu

Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps og Halldóra Hjörleifsdóttir, fyrrverandi þjónustufulltrúi Seyruverkefnisins. Ljósmynd/fludir.is

Halldóra Hjörleifsdóttir hefur látið af störfum sem þjónustufulltrúi seyruverkefnisins en verkefnið hefur nú verið flutt til Umhverfis og tæknisviðs Uppsveitanna, UTU, á Laugarvatni. Verður öllum verkefnum sem áður voru á höndum þjónustufulltrúa sinnt þaðan í framtíðinni.

Það eru Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur sem standa að seyruverkefninu. Verkefnið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna, Landgræðslunnar og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og reka sveitarfélögin móttökustöð fyrir seyru á Flúðum og annast hreinsun rotþróa í sveitarfélögunum.

Rúmlega 7.000 rotþrær á svæðinu
Verkefnið felst í því að sveitarfélögin sjá um hreinsun rotþróa. Hverja rotþró þarf að hreinsa á þriggja ára fresti. Seyrunni er safnað af seyrubíl sem flytur hana að Seyrustöðum í Hrunamannahreppi. Það er seyrunni blandað saman við kalk og stundum einnig grasfræ. Þegar seyran hefur verið kölkuð er henni dreift á sérstakt dreifingarsvæði á Hrunamannaafrétti, þar sem hún er notuð í uppgræðslu. Rotþrær á svæðinu eru nú vel ríflega 7.000 og hefur þeim fjölgað ört undanfarin ár. Verkefnið hefur frá upphafi verið mikið frumkvöðlastarf en Seyrustaðir eru eina vinnslustöð sinnar tegundar á Íslandi.

Fyrri greinAron Lucas gerir tveggja ára samning
Næsta grein„Þetta var bara rifið úr höndunum á okkur“