Útisvæðinu lokað vegna kuldatíðar

Sundhöll Selfoss. sunnlenska.is/Helga R. Einarsdóttir

Útisvæði Sundhallar Selfoss var lokað í dag vegna kuldatíðar. Spáð er talsverðu frosti fram í næstu viku.

Staðan verður tekin á hverjum degi en ekki er ljóst núna hvenær hægt verður að opna útisvæðið aftur.

Innilaugar og sauna verður opið en laugarnar eru þéttskipaðar frá kl. 8:00 til 13:30 á virkum dögum vegna skólasunds og síðdegis og fram á kvöld verður sundleikfimi og ungbarnasund samkvæmt stundatöflu.

Í dag tilkynntu Selfossveitur að vegna mikillar kuldatíðar næstu daga séu notendur Selfossveitna beðnir um að fara sparlega með heita vatnið.

Fyrri greinFólk beðið um að spara heita vatnið
Næsta greinBasarinn skilaði 1,4 milljónum króna í Sjóðinn góða