Umhverfisverðlaun á þrjá staði

Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra 2015 voru afhent á Kjötsúpuhátíðinni um síðustu helgi.

Snyrtilegasta fyrirtækið er Landeyjahöfn og á móti verðlaununum tóku þau Sigmar Jónsson og Hólmfríður Kristín Helgadóttir.

Agnes Hlín Pétursdóttir tók á móti umhverfisverðlaunum fyrir afa og ömmu sína í Ytri-Skógum, þau Kristínu Þorsteinsdóttur og Sigurð Sigurjónsson en þau fengu verðlaun fyrir snyrtilegasta garðinn.

Félagsbúið Stóra Mörk hlaut verðlaun fyrir snyrtilegasta býlið. Ásgeir Árnason og Ragna Aðalbjörnsdóttir tóku á móti verðlaununum.

Fyrri greinUppskeruhátíð 5. september
Næsta greinTíu sækja um Oddaprestakall