
Fyrirtækið Trucks ehf hefur tryggt sér um 7.000 fermetra lóð í Þorlákshöfn þar sem áformað er að byggja upp aðstöðu fyrir sölu, verkstæðisþjónustu og aðra starfsemi tengda atvinnubifreiðum og vinnuvélum.
Í tilkynningu frá félaginu segir að fyrirhuguð uppbygging sé liður í langtímastefnu félagsins um að efla þjónustu við íslenska viðskiptavini og skapa aðstöðu sem getur stutt við aukin umsvif og frekari samstarfssamninga við erlenda framleiðendur.
Trucks.is rekur Trukkur.is sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu atvinnubifreiða, eftirvagna, vinnuvéla og sérhæfðs tækjabúnaðar. Trukkur.is tók nýverið við umboði fyrir Powerscreen á Íslandi en Powerscreen er alþjóðlegur framleiðandi færanlegra grjótmulningsvéla, harpa og flokkunarbúnaðar og er hluti af Terex-samstæðunni. Vélar framleiðandans eru meðal annars notaðar við efnistöku, mannvirkjagerð, námuvinnslu og endurvinnslu.
Samstarfið felur í sér að Trukkur.is mun annast sölu á Powerscreen-vélum á íslenskum markaði og vinna að uppbyggingu varahlutaþjónustu og tæknilegrar aðstoðar í samstarfi við framleiðandann.
