Trampólín á flugi og tré rifnuðu upp með rótum

Þetta trampólín endaði á vörubílspalli á Eyraveginum. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Björgunarfélag Árborgar hafði í nægu að snúast í dag vegna óveðursútkalla þar sem trampólín og lausamunir fuku og tré rifnuðu upp með rótum.

Það hefur verið stífur vindur á Selfossi í allan dag en veðrið var verst á milli klukkan 14 og 15.

Meðal annars rifnuðu stór tré upp með rótum í grónum görðum við Reynivelli, Sólvelli og Kirkjuveg. Þá lagðist megnið af reynitrjám sem plantað var nýverið í Sigtúnsgarði á hliðina.

Þá voru nokkrar tilkynningar um sorptunnur, byggingarefni og trampólín á ferðinni auk þess sem þakplötur fuku af því sem eftir stendur af Hafnartúni í miðbæ Selfoss.

Útköll björgunarsveitanna voru ekki aðeins bundin við Selfoss því sveitir víða um Árnessýslu þurftu að sinna útköllum af þessu tagi.

Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi til klukkan 23:59 á miðvikudag. Á suðausturlandi er appelsínugul viðvörun í gildi til klukkan 6 á fimmtudagsmorgun.

Beltagrafa var notuð til þess að fergja þakið á Hafnartúni. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen
Nýplöntuð reynitré lögðust eins og domino kubbar í Sigtúnsgarði. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen
Fyrri greinTveir Íslandsmeistaratitlar til Berserkja BJJ
Næsta greinLíkfundur í Þórsmörk