Tíu tonna hnullungur þaut í gegnum grjótvörnina

Tíu tonna hnullungur fór í gegnum nýuppsettar hrunvarnir meðfram Þjóðvegi 1 við Holtsnúp undir Eyjafjöllum í morgun. Steinninn braut sér leið í gegnum grjótgrindurnar og olli töluverðum skemmdum á þeim.

Hrunvarnirnar voru nýlega settar upp á um 300 metra kafla þar sem mikil hætta er á grjóthruni. Tilgangur þeirra er að auka öryggi vegfarenda á þessum stað.

Skemmdir urðu á vegkantinum enda grjótið engin smásmíði og fallhæðin mikil. Ljósmynd/Aðsend

Áætlað er að steinninn sé um tíu tonn að þyngd og því mun stærri en algengast er að hrynji úr fjallinu. Við hönnun varnanna var miðað við steina á bilinu þrjú til fjögur tonn. Steinninn er jafnframt mun stærri en sá sem olli banaslysi á þessum stað í mars 2025.

Samkvæmt heimildum sunnlenska.is munaði ekki miklu að steinninn lenti á hópferðabíl sem var á ferð á veginum.

Í tilkynningu segist Vegagerðin líta atvikið alvarlegum augum og er að skoða skemmdirnar. Gatinu í veggnum verður lokað til bráðabirgða og í framhaldi verður metið hvað þarf að gera til að tryggja öryggi vegfarenda.

Minni hnullungar stöðvuðust á grjótvörninni. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinHeimavist við FSu